Anna í Svíþjóð

09.03.2008 23:28:23 / annaisweden

Ég er á leiðinni...alltaf á leiðinni.....!:)

Heldur betur komin tími á nýtt bloggJ Það var sem sagt bara alveg æðislegt í skíðaferðinni í Noregi, vorum ótrúlega heppin með veður og stað settningu, renndum okkur bara útí brekku, og fórum svo upp með stólnum til og rendum okkur heimJ Algjör snilld! Ótrúlegt en satt datt ég bara einu sinni á hausinn og meiddi mig hehe, datt oftar en það var bara einu sinni virkilega vont! Stelpunar litlu voru alveg þvílíkt duglegar, fannst þetta svo gaman og fórum bara í stóru brekkurnar, vorum með svona beisli um sig og brunuðu svo bara af stað og mamma þeirra og pabbi á eftir, rosa sniðugtJ

Svo síðan ég kom til baka erum við Katrína búnar að vera nokkuð duglega að versla hehe, erum að kaupa allt sem búið er að óska eftir að heiman, sem er alveg fínasti slattiJ En það er nánast allt reddí og bara vika í heimferðJ Ég verð heima í 8 daga, þannig það þarf að skipurlegga tíman vel, reyna að hitta sem flestaJ Sumir verða að bíða í 3 mánuði í viðbót hehehJ En það er semsagt komið á hreint að ég flyt aftur heim 15. Júní,  þannig það er bara ótrúlega stutt eftir, eins gott að nýta tíman vel hérna sem eftir er, hætta letinni sem hefur verið í gangi hingað til heheheJ

Annars er ég búin að setja inn hellinga af myndum í myndum í myndasafn, 4 nýalbúmJ Tenerife, skíðaferðin og svo 2 önnur af mér og Katrínu hahahJ erum að reyna að vera duglegar að taka myndir, fengum báðar nýjar myndavélar í afmælisgjöf, þannig ég reyni nú að vera dugleg núnaJ

En gott í biliJ


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.02.2008 00:41:41 / annaisweden

lata fata!

jæja jæja, eg er náttla ekki að nenna að blogga hérna heheh:) en fannst ég nú þurfa að henda inn smá, þar sem ég fer til noregs á morgun i viku:D í skíðaferð, verðum í husi uppí fjalli þannig að maður rennir sér bara yfir í skíðalyfturnar:)

Annars bara allt rosa gott að frétta eins og vanalega, varð 20 í síðustu viku:) rosa stór má loksins fara í ríkið hhaha:)  Fagnaði því með því að fara út að borða með Katrínu og Erlu og við katrína enduðum svo a djamminu langt fram eftir morgni, skemmtum okkur konunglega, deginum eftir var svo melodifestival, sem er sænska undan keppnin fyrir júróvisijon:)  og þá fekk ég afmælisköku og góða mat og svona:) og svo á sjálfan afmælisdaginn fórum við út að borða á Hard rock:)

Svo einkennast dagarnir mín mjög mikið af búðarrölti hehe:) sem er bara næs:)

En ég er búin að kaupa nýja myndavél þannig þegar ég kem til baka set ég inn slatta af myndum sem ég er búin að taka og á eftir að taka í vikunni:) ásamt tenerife myndunum, en þær eru komnar á myspace á bara eftir að færa þær hingað:)

læt þetta duga í bili það er ræs eftir 5 tíma og þá leggjum við í hann:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 15:20:02 / annaisweden

Everything is going to be alright:)

 Heldur betur komin tími á bloggJ margar kvartanir borist hehe, bara hef ekki nennt að blogga heheJ

En alla vega jólin og áramótin löngu búin, var í 2 og hálfa viku heima á íslandi sem var bara æðislegtJ Hitta alla sem ég var búin að sakna svo mikið, og vera með hana Thelmu mína, hún er bara sætust, get ekki beðið eftir að knúsa hana þegar ég kem næstJ en jólin vorum bara rosa fín, við vorum bara 3 heima mæðgurnar heima, og fórum svo til Pálma, Tinnu og Thelmu þegar við vorum búnar að opna pakkanaJ Svo voru tíbísku fjölskylduboðin sem eru alltaf voða skemmtilegtJ Áramótin voru snilld, en enduðu skrautlega hehe.

Svo var ferðinni haldið hingað til Svíþjóðar , stoppaði stutt, náði að eyða smá tíma með Katrínu, en hún verður hér síðustu 6 mánuðina með mérJ og náði líka að hitta 3 au pairina sem var að koma, þannig núna verður bara endalaust stuð, þótt það var nú líka alltaf rosa gaman áður en þær komu, núna verður bara ennþá skemmtilegraJ

13. jan var ég svo mætt í sólina á Tenerife, þar tóku við æðislegar 2 vikur, mikið sólbað, dýragarðar, vatnsrennibrautagarður, ströndin, skoðunarferðir um eyjuna ,fór svo uppá teide –sem er eldfjallið á Tene fór uppí  3555 metrahæð þar sem var hitinn undir frostmarki og snjór meðan það var 27 stiga hiti annars niðriJ, og meira skemmtilegt J

Svo komu ég heim á sunnudaginn og allt er að komast í sitt venjulega formJ og bara æðislegt að geta skroppið til Katrínu J Hún og Erla kíkja vonandi á mig í kvöld, en er að passa því brynja þar að vinna til hálf 11.

Annar er allt bara rosa gott að frétta eins og vanalega, líður vel hér og skemmti mér konunglegaJ

Sakna samt fullt af fólki þarna heima, en það er ekkert að fara langt, hitti ykkur eftir einn og hálfan mánuðJ en læt þetta duga í biliJ

Ps skelli svo myndum inn sem fyrstJ


» 8 hafa sagt sína skoðun

15.12.2007 00:01:00 / annaisweden

3 dagar:)

Var að sjá fram  á það að ég kemst ekki heim, var að byrja að reyna að pakka, bara búin að setja niður jólagjafir(þær sem ég er buin að kaupa) og það komst engin föt eða skór, og ég á eftir að kaupa fleiri gjafir! Veit ekki alveg hvernig ég á að fara að þessu ennnn það verður spennó að sjá, gætuð þurft að sætta ykkur við að fá ekki pakka fram mér.....eða sumir kannski að lána mér föt:D

Annars eru bara 3 dagar í þettaJ Fer „snemma“ af stað á morgun að kaupa restina af jólagjöfum, svo förum við í Liseberg seinni partinn, og svo ennþá meiri jóla jóla á sunnudaginn, og brott för héðan hálf 10 á mánudags morgun, spennó:D

Fleira hef ég nú ekki að segja í bili,  nema ég get ekki beðið eftir að knúsa alla  sem ég búin að sakna svo mikiðJ Það má kíka í heimsókn á mánudaginnJ Hafdís bakar skúffuköku , á bara eftir að ræða það við hana heheJ en langur dagur framundanJ leiter;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.12.2007 23:33:00 / annaisweden

Jóla jóla!

Ég er engan vegin að standa mig í þessu bloggi hérna hehehehJ Planið var að koma með smá þegar ég kom frá Köben, en það fyrir fórst aðeins.....heheJ  En Gréta kom sem sagt til mín í síðustu viku og við versluðum hérna í Gautaborg alveg ágætan slatta, kíktum svo í Liseberg í grenjandi rigningu, bara kósý, og ég hef held ég aldrei séð neinn brosa jafn breitt og Gréta gerði þegar hún sá garðinn, hún var verri en litlir krakkar í nammibúð, missti sig af gleði. Skelltum okkur svo á Hard Rock eftir á, eftir langan rigningardag, og við fengum ekki frið, haha borguðum fyrsta drykkinn okkar og svo fengum við frítt að drekka það sem eftir kvöldsins bara kúl, gaurar í reykjavík hefðu ekki litið við okkur í þessu ástandi hehehJ Svo allt í einu voru Hells Angels allt í kringum okkur buðu okkur í glas og voru að spjalla voða mikið, við ákvaðum að láta okkur hverfaJ Skelltum okkur svo til Köben það var bara gaman, gistum hjá Ebba, Gunnellu og Lovísu J og auðvita var strikið skoðað nokkuð vel, kíktum í tívolíð, eða misstum okkur þar:D og eyddum svo Sunnudeginum í Fisketorvet,  þar til tíminn var komin á mig að rúlla aftur yfir í svía ríkiJ

Svo eru bara búnir að vera róleg heitar dagar hér í kotinu, stelpurnar voru veikar fimmtudag og föstudag , og við höfðum kósý dag, horfðu á disney stöðina, og svo perluðum við, lituðum jólamyndir og máluðum og hlustuðum á tónlistJ Svo í gær var verið að kveikja á jólaljósunum á Avenyn sem er svona mjög stór gata hér, og eitthvað eld og trommushow og svo sýnd stutt mynd á lista safninum sem er efst á götunni, og við kíktum þangað auðvitaJ Sá svo það asnalegasta sem ég hef séð held ég, það sem svíum dettur í hug hahah, SYNGJANDI JÓLATRÉ! Kór sem raðaði sér uppá palla sem var einsog jólatré í laginu í í grænum og rauðum búningum, mjög spes!

Svo var bökunar dagur í dag, bökuðum piparkökur og máluðum þær og svo líka cookies, og auðvita jólatónlistin í gangi, þetta er nú hálfgert jólahús sem ég bý í haha, Brynja svo sannfærð um að henni sé að takast að gera mig að jólabarni!

Svo eru bara 9 dagar í að ég verð komin á klakanJ oooo hlakka svo til að hitta alla sem ég sakna svo mikiðJ Það verður bara æðislegtJ Svo þegar ég kem aftur hingað kemur Katrína náttla líka og við ætlum að mála bæinn rauðann heheJ Það verðu bara æðislegt að hafa hana með mérJ

En ætla að horfa á Sex and the city, áður en ég hendi mér inní rúm, sofnaði í 3 tíma áðan, er eitthvað slöppL sem er bannað því ég á eftir að kaupa allar jólagjafir áður en ég fer heim heheh;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 23:15:20 / annaisweden

Jóla hvað:)

Jæja hvar á ég að byrja, ég fékk nettan blogg leiða og hef ekki fengið mig í að skrifa niður stakan staf í góðan tímaJ Við skvísur á þessum bæ erum búnar að vera þvílíkt menningarlegar undan farið, fórum á eitthvað sjósafn eða sjöfarstmuseet, allskonar módel af skipum og eitthvað þannig og svo fórum við núna um helgina á naturhistoriska musem, þar sáum við alls konar uppstoppuð dýr það var bara flott, svo var eitthvern risa uppstoppaður hvalur og jólasveinninn var þar inní að spjalla við krakkana, ekki beint jólalegur kall með opna buxnaklauf í þokkabót!!!!! Sá þarna fullvaxtafóstur af síams tvíburum í krukku mjög spes, og þróun fósturs, skrítið að sjá svona lítið fóstur í belg :S En þetta var mjög fróðlegtJ Svo er Liseberg búið að opna aftur fyrir jólin, allt þvílíkt jólalegt og flott:D Búin að kíkja 3 sinnum, en ekkert stoppað lengi og náð að gera allt sem mér langar að gera þannig ég á eftir að fara nokkru sinnum í viðbótJ

Gréta er svo að koma til mín á fimmtudaginn verður í eina nótt og svo fórum við öll saman niður til köben keyrandi á föstudaginn og verðum þar yfir helgina kíkja á strikið  og í tívolíið og svonaJ Get ekki beðið eftir að fá hanaJ

Svo eru bara 3 vikur í dag þar til ég kem heim í jólafrí, verð í 2 vikur og 4 daga....og ætla svo að njóta þessu, réði mig reyndar í smá vinnu í exit komast inní jólastressið heimaJ og þá á ég líka pening fyrir Tenerife:D Get heldur ekki beðið eftir að hitta alla, dáldill söknuður kominn í migJ

Svo er það snilldar frétt:D Katrína er að koma út í janúar til mín sem au pair, hjá vinafólki þeirra sem ég er hjá, þannig við verðum saman hér í 6 mánuði:D Það verður bara æðislegt að hafa hana, vantar alltaf vinkonu til að tala við og versla með annað slagiðJ oooo þetta verður yndislegtJ Svo er annað fólk líka að að fá sér íslenska au pair, þannig við verðum alveg 3 hérna frá með janúarJ

Ég er búin að setja aðeins af myndum inná, eitthvað síðan mamma og hafdís voru hér, ekki alveg búin að klára það, þær misstu sig aðeins í myndatökum, og svo líka smá frá nóvember, á eftir að bæta nokkrum við og svo verð ég dugleg þegar Gréta kemurJ

Læt þetta duga í biliJ


» 7 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 12:04:49 / annaisweden

leti líf...

Jæja löngu kominn tíma á blogg, ekki beint búin að vera dugleg uppá síðkastið, og kvartanir búinar að berast samkvæmt þvíJ  Það hefur svo sem ekki mikið á dagana drifið síðan ég bloggaði síðast, eintóm róleg heit og leti. 

Anna Valgerður var svo veik í síðustu viku þannig ég var bara heima með stelpurnar voða stuð á okkur, þó að disney stöðin hafi alveg verið að gera það gott, en við tókum okkur nú góðar pásur til þess að fá nú ekki kassa auguJ

Svo var bara svaka veisla hérna á laugar daginn, held það hafi verið hátt í 40 íslendingar í húsinu, sem var bara gaman, Brynja átti afmæli og Oddur var að fá Heimilislæknaréttindindin sín, þannig þau ákvaðu bara að slá þessu upp í vitleysu heheJ En þetta var rosa gaman, gott að hitta svona mikið að íslendingum, hvað við erum nú skemmtileg þjóð upp til hópaJ

En þar sem ég er svo löt núna og nenni ekki einu sinni fram úr rúminu, ætla ég nú alla vega að skella inn nokkrum myndumJ Blogga svo þegar ég hef eitthvað meira skemmtó að segjaJ


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.11.2007 15:18:14 / annaisweden

Gestirnir farnir...

Jæja þá eru mamma og litla sys farnar aftur, svona líka fínar 2 vikur að bakiJ og allt fellur í sinn venjulega far vegJ Það var nú mest af öllu verslað, þær rétt sluppu með smá yfirvigt heheh, en svo fórum við nú líka í dýragarðinn, og á eitthvers konar vísinda safn, mjög gamanJ Svo leigðum við bíl og  lögðum af stað á vitævintýranna , fórum niður til helsingborgar að heimsækja frænku okkar sem við höfum ekki séð í fjölda ára, hittir þar Alexander og Amöndu í fyrsta sinn, dáldið spes þar sem ég og mamma þeirra erum systkinabörn, svona sterk eru ættartengslin!

Skrítið að þessar 2 vikur séu bara strax búnar, finnst ég bara vera nýbúin að vera að telja niður í að þær komiJ en þá er það bara næsta ferð að telja niður í J Gréta er að koma í lok nóv, við ætlum að keyra niður til köben akkurat helgina sem hún er þar þannig við getum skvísast aðeins í köben samanJ Svo er það bara Ísland 17.des, alls ekki langt í það í dag, og ef tíminn heldur áfram að líða svona hratt þá er ég bara alveg að komaJ  Það verður svo gaman að hafa 2 og hálfa viku á íslandi, alltof stutt að koma í 2 og hálfan sólarhring, náði ekki að gera helminginn af því sem mér langaði að gera:D En svo kem ég aftur hingað 4.jan, oooog svo er búið að panta far til tenerife 13.janúar:D verðum þar í 2 vikur. Mikið spennó að fara að gerast, þvílíkt spenntJ

Svo er víst farið að stittast í blessuðu jólin, Brynja er svo mikið jólabarn, svo kem ég antíjólabarn heheh, en ég er að reyna að vera oprnar fyrir þessu hehehJ fer með þeim á eitthvað jólaleikrit, og jólahlaðborð, og svo opnar liseberg og voða jóló og þannig kannski kemur jólaandinn yfir mig þessi jólinJ en þessu fylgir því að kaupa jólagjafir, sem ég er afar léleg í , þannig óskir eru vel þegnarJ

Set svo inn myndir fljótlegaJ en hér koma nokkrarJ


» 7 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 21:43:26 / annaisweden

Ísland fagra Ísland:)

Jæja þá er ég komin til baka:) Eftir æðislega ferð heim til Íslands Eftir mikið stress lenti ég heil heima um klukkan 9:) Þar beið Pálmi, Tinna og Fallega litla frænka mín, komu mér á óvart að mæta hélt og að mamma, Hafdís, Svava og Katrína væri þarna en þær biðu bara heima ásamt Aldísi og Önnu Fanný:)

Skvísan var skírð á sunnudag og fékk nafnið Thelma Dórey:) Svo flott og fer henni svo vel:) Uppáhalds frænkan fékk auðvita að vera skírnavottur mjög glöð með það:) Fékk svo líka að baða hana( með aðstoð frá mömmunni, var ekki alveg klár hvernig þetta virkaði) og svo klæddi ég hana í litla prinsessu kjólinn sinn:) Getið rétt ýmindað ykkur hvað hún var falleg þetta litla kríli:)

Annars var helgin bara æðisleg í alla staði, gaman að hitta fjölsylduna og vini, djamma með stelpunum, þó ég hafi nú náð að hitta færri en ég hefði viljað, en ég hef nægan tíma þegar ég kem næst og ekki nema 2 mánuðir í það:) Meikað það ekki að fara útí meiri smá atriði, var sko gáfuð að næla mér í flensu þennan stutta tíma sem ég var á klakanum! Frekar fúlt:) Smelli samt inn smá myndum, set allar inn þegar mér líður ekki lengur eins og hausinn á mér sé að springa:)

Stolt frænka:)

Smekkleg:)

Ég og Hjalli vorum skírnavottar:)


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 19:40:23 / annaisweden

ÍSLAND!

Þá er það orðin opinbert ég er að koma til Íslands, á morgun, föstudag:) Lendi kl 21:D verð fram á mánudagsmorgun:) Aðalmálið er auðvita að koma í skírnina hjá litlu frænku minni:) Og hitta alla vini mína:D Hlakka svooo til:D  Þannig ef eitthvern langar að hitta mig, þá bara bjalla á mig :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.10.2007 22:42:44 / annaisweden

2 KG. TOBLERONE!

Það hlaut að koma að því að lukkan léki við migJ Fórum í Liseberg í dag  síðasta sinni í dag fyrir lokun, og loksins loksins tókst mér að vinna súkkulaði, og vann hvorki meira né minna en 2 kg að toblerone. Mamma þarf alla vega ekki að kaupa toblerone í jólaísinn, og ekki Brynja heldur, fleiri sem gera tobleron ís á jólunum?:)

 Gráðuga ég:)

Í síðasta bloggi talaði ég um að fara út að hjóla, held að það hafi margir hugsað,

æjj hún er alltaf á leiðinni að gera eitthvað svona en nei ekki Anna. En vitið menn ég fór, og djö......tók það á hahah ég var dauð eftir hálftíma og snéri heim, ætlaði í kringum eitt vatn sem er hér rétt hjá, en sá aldrei þetta blessaða vatn. En ætla að taka með myndavél næst, svona til sönnunar, líka bara flott hérna í kring, verð að leyfa ykkur að sjá smáJ

Fór svo í smá verslunarferð með Birgittu á fös, keypti bara einn jakka, er að sparaJ heheh þangað til að mamma og Hafdís koma, þá ætla ég að missa migJ Fengum okkur svo að borða á svona resturange & pub, þvílík stemning, trúbador að spila, fengum okkur bjór með matnum, og svo fékk ég lang þrá bachardi razz í sprite, vá var næstum búin að gleyma hvað það er gott:D Hér má ég sko versla áfengi á skemmtistöðum, en ekki í ríkinu, dáldið spesJ

 Laugadaginn var glapandi sól og heitt, bara eins og góður sumar dagur á Íslandi og það er komin október, frekar spes að geta farið í sól bað í oktJ En við vorum bara í róleg heitum, fórum í hjólatúr með stelpurnar, svo sópuðum við Önnurnar bílastæðið, frekar mikið að laufblöðum kominJ

Svo bíður mín bara nývika í Svíþjóð, 11 dagar í móðir mína og Litlu sys, gæti ekki verið spentari:D

Já svo vill ég vita hver sagði þvert nei í könnunni hér til hliðar:)!!!


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.10.2007 22:48:32 / annaisweden

18 dagar.....

Vá hvað ég er ekki búin að vera í stuði til þess að henda eitthverju hérna inn.....en skal reyna....það er víst eitthvað liði sem kíkir hér....víííJ

 

Helgin er búin að vera æði, var veik fyrir helgi fékk bólgur í eyrað, komin á stera og sýklalyf....hehehJ Snilld að búa hjá læknum, og þurfa ekki einu sinni að fara útúr húsi til að láta athuga hvað er að manniJ Málinu bara reddað fyrir framan TviðJ

Kíktum aðeins í Liseberg snemma á laugardag, en það var nú aðalega fyrir stelpurnar, fór samt í nokkur barnatæki, bara gamanJ Svo þurfti Brynja að fara að vinna kl 4 þannig ég var bara að passa á laugardagskvöldið, leigði bara vídeo og hafði það kósýJ Svo á sunnudaginn, fór ég með Birgittu og Einari, og 2 svíum í Liseberg, það var æði, þvílíkt gaman að komast út og gera eitthvað með jafnöldrum, er bara með Brynju og stelpunum alla dagaJ Birgitta kom svo með mér hingað og það beið okkar dýrindis danskur svínahamborgarahryggur....og frönsk súkkulaði kaka með jarðaberjum og ís í eftir rétt, bara gottJ Hef samt aldrei verið jafn hrædd og á leiðinni heim þegar ég var búin að keyra Birgittu heim....hún býr útí skógi, vá ég með litla hjartað mitt.....úfff...en það tókst J Komst heil heimJ

Stelpurnar fengu svo frí í leikskólanum í dag útaf pabbi þeirra kom í stutt stopp til okkar, skelltum okkur í lek och buslandet, þar fann ég litla barnið í mér, þetta er riiisa stórt ævintýraland, elti stelpurnar upp og niður í þessu í góðan tíma beið bara eftir að ég festist!

Svo mætti ég bara fersk í sænsku, bara gaman þar, finnst ég svo klár þarna hehehheJ Enda búin að læra þetta nánast það saman í dönskunni, en það er annað málJ

Ætla svo út að hjóla á morgun og taka það rólega, skoða þessan skóg sem er hér allt í kring aðeins betur:)

Bara snilld hvað tíminn líður, búin að vera hér í 2 mánuði eftir viku:) Mamma og Hafdís koma eftir 18 daga:) svo kemur Gréta í lok nóv, og ég næ sennilegast bara að kíkja með henni svo niður til köben:) og ég verð komin í jóla frí innan við 80 daga:) þetta fer allt að gerast:)

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 21:36:16 / annaisweden

„Mér kannast svo við þig, hefur nokkuð komið til Suður-Afríku?“

 Fékk þessa skemmtilegu spurnigu á sænsku námskeiðinu, frá gaur frá Kenýu! Hahaha vissi ekki hver ég ætlaði, svaraði neitandi, og þá sagði hann þá ertu örugglega rosalega lík eitthverri sem ég hef sé, já alveg pottþétt:)

 Annars er bara fínasta lið þarna, var að spjalla við eitthvað lið í pásunni, þá hafði einn smakkað íslenskan hákarl og fór að lýsa því hvað er gert við hákarlinn, hálf þurkaðu og svo grafinn og það, leið hálf asnaleg, dóu allir úr hlátri við þessa skemmtilegu hefð, ég reyndar hafði hvorki smakkað hákarl, né vissi hvernig þetta er gert, þannig þetta var fróðleg stund! Svo var ég spurð, hvort þetta væri borðað á eitthverjum sérstökum tíma, reyndi eitthvað að lýsa þorranum, tókst að asna útúr mér að það væri líka borðaðir kindahausar, þá hætti líka stelpan frá kartöfluríkinum í usa að skammast sín!

Helgin var mjög fín:) Fékk íslenskt lambalæri á föstudaginn í matinn....bara gott:) Kíktum svo í outlet, keypti ekki mikið en náði að finna mér adidas peysu og adidas galla á litlu skvísuna:) Fékk svo því líkar gleðifréttir seinni partinn:haha: Mamma og litla sys eru að koma til mín 19 okt:D Ekki nema 24 daga í það:D Vá hvað það verður æðislegt:lol: Er strax byrjuð að reyna að plana hvað við getum gert, en eina sem mér dettur í hug er að versla hehe:) Get ekki beð eftir að fá þær og sýna þeim allt:)

Svo kom sunnudagur, þá lá leiðin í Sirkus Maximus:) Það var bara snilld, Litlir kínverskir strákar í loftfimleikum, fílar að standa á haus, kameldýr og pony hestar að sýna listir saman, púðluhundar þeir löbbuðu um í röð á 2 fótum og héldu í hvorn annan og allskona bara snilld, stelpur að hjóla og hoppa á milli og gera listir, trúðar og fleira, held ég hafi skemmt mér alveg jafn vel og litlu krakkarnir:)

Svo er ég bara búin að vera löt, kíkti aðeins uppí moll í gær, og svaf svo bara í allan dag, var illt alls staðar, þannig ég tók bara verkjalyf og svaf:) Svo er Brynja í fríi á morgun, þannig við ætlum bara að fara með stelpurnar á leikskólan, sofa aðeins lengur, og var svo 2 í smá verlsunarleiðangur:)

Hef held ég ekkert meira að segja í bili. Sakna ykkar allra, bara mismikið:) Takið það til ykkar sem eigið það hahahaha;)

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 20:29:29 / annaisweden

:)

Fékk góðar fréttir í dag:D Móðir mín er búin að vinna tíma til að komaJ reikna með að hún verði hér í 12 daga:D 17 til 29 okt....bara 3 og hálf vika í hana, vá það verður æði að fá mömmu sínaJ heheh já ég er mömmu stelpa;)  Er búin að hugsa í dag hvað ég á að sýna henni, ekki hægt að fara í tívolíið en lokar rétt áður en hún kemur og opnar aftur síðustu helgina í nóv, svo er mamma líka hrædd við rússíbana, þarf að kanna þetta, held að búðirnar verði bara efstar á listaJ

 

Annar s er vikan bara búin að vera róleg, fór í sænsku tíma  númer 2 á miðvikudaginn, tók í fyrsta skipti eins lest! Brynja var búin að segja að ég ætti að taka 17 uppá spítala og sporvagn 1 þaðan ekkert vesen vissi hvernig það virkaðiJ rölti uppá spåntorget sem er bara hérna rétt hjá og þá kemur 17 og ég hleyp eins og vitleysingur og hoppa uppí.....svo fer hann fram hjá spítalanum!!!!! Fatta þá að það stóð Björkekjårr(hverfið sem ég bý í ) á honum en ekki östra sjukhuset....og allt í einu er ég komin útá hraðbraut!!!  Ákvað að býða aðeins og sjá......þekkti nú leiðina á fór bara út á centralstation, fann eitthver sporvagn þar sem ég hafði áður farið í til þess að fara á sama stað og ég var að faraJ Sem betur fer komst ég á leiðar enda.....og miklu fyrr heldur en ég hefði verið hefði ég farið í réttan strætó í byrjun, greinilegt ég á vel heima hérnaJ

 

En eins og ég sagði....hef ekkert gert í vikunni þannig ég hef lítið að blogga um. Kíktum jú að skoða heita pott í dagJ  Eitt stykki svoleiðis ætti að vera komin í  hús á næstu dögumJ þýðir ekkert að hafa sundlaug og sána en ekki pottJ

 

Fer svo í sirkus og eitthvað svona um helgina þannig ég ætti að hafa eitthvað að blogga um eftir hana....læt þetta duga þar til þáJ


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 20:59:53 / annaisweden

jæja...

.....kominn tími á bloggJ Er reyndar búin að reyna að blogga í nokkra daga en færslan hefur bara aldrei viljað fara inná netið, svo datt allt út og ég veit ekki hvað, een vonandi er þetta nú komið í lagJ

Móðir mín var 45 ára í gær, frekar stórt afmæli ekki satt. Hún bauð eitthverjum ættingjum í kökur í gær, frekar fúlt að geta ekki verið þar, en það koma afmæli eftir þettaJ  Við tókum okkur nokkur saman og gáfum henni fyrir ferð til mínJ Þannig að mamma er að fara að koma til mín, og vonandi Hafdís með, ef hún er dugleg að spara, pælingin er held ég að koma í lok næsta mánaðarJ Ég orðin frekar spent að sýna þeim allt hérnaJ Svo er bara spurning hvenær restin ætlar að koma að heimsækja mig, margir búnir að lofa, bannað að svíkjaJ

Ég er samt alltaf að finna galla hérna í Svíþjóð, þeir eru kannski ekki stórir, svíar finna ekki fyrir þeim, en ég sem íslendingur gerir það, í fyrsta lagi það eru ekki til súkkulaði snúðar hér, er reyndar búin að finna risa kanelsnúða sem bjarga eitthverju en þeir verða samt aldrei súkkulaði snúðar. Í öðru lagi, þá er ekki hlé í bíó, það er held ég bara eitthvað sér íslenskt, slæmur ávani að þamba kók pissa vel í hléinu og drekka svo meira kók, hér þarf ég að passa að drekka ekki allt í byrjun, því þá á ég ekkert í lokinn og er alveg að pissa í mig, og þar af leiðandi get ég ekki einbeitt mér að myndinni. Í þriðja lagi þá eru svíar ekki ennþá búnir að uppgötva pítusósu, kokteilsósu og hamborgarasósu, hvernig er hægt að fá sér pítu án pítusósu? Við látum að sjálfsögðu bara senda okkur pítusósu frá Íslandi ekki annað hægtJ Eins og ég sagði kannski ekkert stórir gallar, en gallar þó. Svo vega kostirnir alltaf á mótiJ

Ég byrjaði í sænsku í gær, mjög spes, erum 19 og frá 15 löndum vel dreyfð um heiminJ Fannst frekar fyndið að heyra marga reyna að bara fram orðin, örugglega svipað og ég færi að reyna að segja eitthvað á KínverskuJ  Fannst snilld hvað ég skildi mikið, en kennsla fór fram á sænsku og svo kom hún alltaf með enskuna inní til að útskýra betur, en ég skildi bara alltaf þegar hún var að babbla á sænskuJ Grunnskóla danskan loksins að gera smá gagnJ Það hlaut að koma að þvíJ Þurfum að tala rosalega mikið þarna....sem er eiginlega smá galli fyrir mig, því öll mín skóla ár hef ég nú að mestu sloppið við það, vegna þess að ég var/er svo feimin að það heyrðist aldrei neitt í mér og ég bara sagðist ekki geta þettaJ

Annars er lítið að frétta héðan úr SwedenJ Mér líður bara mjög vel hérna, fólkið sem ég er hjá er alveg æðislegt við mig, sem bjargar ölluJ Annars væri ég örugglega löngu komin heimJ Svo vonandi fer ég bara að kynnast fleira fólki hér, en það kemur vonandi bara með tungumálinuJ hehehJ

Setti uppteljara á síðuna ef þið voruð ekki búin að sjá það, en hann telur niður hvað er langt í jólafríið mitt.....er reyndar ekki komin með 100% dagsettningu þannig að þetta gæti verið 2 daga + eða -  vonandi bara mínusJ heheh ekki það að ég sé eitthvað að þrá það að komast heim, langar bara að koma knusa alla sérstaklega litlu skvísuna mín sem er 3 vikna í dag, og koma svo afturJ Finnst samt tíminn hér líða mjög hratt það er alltaf komin aftur helgi sem er mjög gott, finnst hinsvegar þessi niðurteljari ekkert hreyfast!

Er farin að sofa....þarf að læra í fyrra máliðJ Á að skrifa stíl um mig á sænsku, sjáum hvernig það fer núJ

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 10793
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1335 dögum
Ég flyt heim:)
RSS tengill
Könnun
Á ég að framlengja dvölinni hérna úti?